HELGIN.
Ég fór á djammið á föst, með stelpunum mínum og var það nú lang skemmtilegast í heimashúsi eins og oft er, en fórum niðrí bæ.
Á laug var ég svo vakinn snemma og rifinn á óvænta hestaferð, mjög þunn. Og var á hestbaki mest allan laugardaginn, það var kalt en rosalega skemmtilegt.
Ég fékk hest sem var mjög duglegur, en ekki mikið fyrir að stoppa þegar ég bað hann um það, svo ég var bara allan tíman fremst og að reyna að hægja á hestinum![]()
Eftir hestaferðina fór ég heim beint í sturtu og í fín föt og svo í leikhús
og þegar ég sat í leikhúsinu þá fann ég að ég var að stirna upp og strengirnir í rassinum urðu meiri og meiri, svo á endanum á leikritinu gat ég varla setið hehehehe, hefði átt að taka svona kleinuhring með á leikritið.
Eins og þið vitið þá finnst mér mjög leiðinlegt í ræktinni, er meiri jóga manneskja svo þið getið nú ýmindað ykkur strengina sem komu, og ég var með svo mikla strengi í bakinu á stöðum sem ég vissi ekki að það væri hægt hehehe.
Svo á sunn gat ég ekki beygt mig niður og var algjör aumingi, lá upp í rúmmi að læra og reyndi að teyja á ![]()
En svo eru það prófinn sem nálgast svo ég er nú bara oftast að læra og svo auðvitað að vinna.
En þetta er komið gott bæjó.
